Ágrip af helstu hugsjónum Alberts Schweitzers, allt frá Guðfræði hans, siðfræði og til heimspekinnar, ekki síst í samræmi við hans eiginlega lífsköllunarstarfs sem kristniboðslæknis:


Grundvöllurinn er Jesús Kristur. Þessi kristna lífshugsjón Scheitzers, er í órofa samhengi, við kristniboðsskipunina sem og það, hvernig Jesús, bæði læknaði sjúka, og endurleysti til lifandi trúar á Hann sem og fyrirmælum Jesú til lærisveinanna, að lækna sjúka, og boða þeim það fagnaðarerindi, að Guðsríki er í nánd. Tengist þetta jafnframt grundvallarhugmyndum Schweitzers, að Jesús og frumkristnin, væntu komandi heimsslita, og að Guðleg tilvera tæki við, og Jesús væri hinn fyrirheitni Messías, byggðist verulega á síðari gyðinglegri/um heimsslitakenningu/m, að Guðs ríki væri í nánd, sem byggðist þar á hinum fyrirheitni Messíasi. (Albert Scheitzers, 1954,
 The Quest of the Historikal Jesús, bls. V (ogVI); Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, Albert Schweitzer, ævisaga, bls. 36-39. Þá áréttar Schweitzer enn endurkomu Krists, þar sem kemur fram skipun Jesú til lærisveina sinna, að sinna sínum minnstu meðbræðrum og systrum, þ.m.t. sjúkum, föngum o.s.frv. (Albert Scheitzers, 1954, The Quest of the Historikal Jesús, bls. VI). ,,Öll lifandi þekking á Guði er fólgin í því, að vér lifum hann sem kæleiksvilja í hjörtum vorum.“ (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, Albert Schweitzer, ævisaga, bls. 270). Allt sem skiptir máli er viljinn, vonin og trúin. (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, Albert Schweitzer, ævisaga, bls. 271).  


Þá byggist, eða öllu heldur dýpkar, hin kristna kærleikshugsjón Schweitzers, einnig á kristilegu siðferðilegu áliti hans, ,,lotningu fyrir lífinu“, sem kemur fram í kristilegu heimspekiriti hans, Menning og Siðfræði/Siðferði (Kultur und Ethic).  ,,Hugtakið ,,lotning fyrir lífinu“ hefur öll skilyrði, segir Schweitzer, til að vera grundvöllur einfaldrar lífsskoðunar, sem allir geta skilið, en er um leið í samræmi við kröfur rökrænnar hugsunar og samkvæm kærleikskenningu Jesú.“(Sigurbjgörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, Albert Schweitzer, ævisaga, bls. 268; áherslubreyting:  ÓÞ). 

Þessi djúpa kristilega lífshugsjón dýpkar enn dýpt þeirrar kristilegu lífshugsjónar, sem fram kemur í hinni kristnu kærleikshugsjón Alberts Schweitzer, sem kemur ekki síst fram í guðfræðikenningum hans, einkum fyrrnefndum niðurlagsorðum hans í riti sínu um Ævisögur Jesú, enda fylgdi hann kölluninni algjörlega eftir, með því að reisa sjúkrahús, í Lambarene við Ógówefljót, í Frönsku Miðbaugs-Afríku (A. E. F.), og starfaði þar sem kristniboðslæknir í rúma hálfa öld.  (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, Albert Schweitzer, ævisaga,bls. 81, 250).


Reykjavík, 10. mars 2012.  Birt upphaflega: 25. mars, 2011.  Birt endurbætt:  11. apríl 2012.  Endurbirt 19. apríl 2014.


Með óskum um alla Guðs blessun

Ólafur Þórisson, cand. theol. 


Höfundur er með embættispróf í guðfræði frá HÍ., og hefur lögbundinn rétt til embættisgengis til prestsþjónustu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Þórisson

Höfundur

Ólafur Þórisson
Ólafur Þórisson
Höfundur er með embættispróf í guðfræði frá Háskóla Íslands, og hefur lögbundinn rétt til embættisgengis til prestsþjónustu. Höfundur er að vinna að MA-ritgerð um mannvininn og kristniboðslækninn Albert Schweitzer. Höfundur er einnig að vinna að greinaskrifum um Albert Schweitzer, sem birtast sérstaklega á þessari heimasíðu (bloggsíðu).
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband