HUGVEKJA: LÍKN OG MISKUNN, ANDSTÆTT MISKUNNARLEYSI HEIMSINS:

Í Matteusarguðspjalli, 25. kapítula, versum 34-36 og 40, stendur ritað:
Og þá mun konungurinn segja við þá til hægri: ,Komið þér, hinir blessuðu föður míns, og takið að erfð ríkið, sem yður var búið frá grundvöllun heims. Því hungraður var ég, og þér gáfuð mér að eta, þyrstur var ég, og þér gáfuð mér að drekka, gestur var ég, og þér hýstuð mig, nakinn og þér klædduð mig, sjúkur og þér vitjuðuð mín, í fangelsi var ég, og þér komuð til mín.‘
Konungurinn mun þá svara þeim: ,Sannlega segi ég yður, það allt, sem þér gjörðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gjört mér.‘

Bæn: Ó, Guð þinn anda gefðu þinn,
er glæðir kærleik, von og trú,
og veit hann helgi vilja minn,
svo vilji‘ eg það, sem elskar þú.

Því hungraður var ég, og þér gáfuð mér að eta; þyrstur var ég, og þér gáfuð mér að drekka; gestur var ég, og þér hýstuð mig, nakinn og þér klædduð mig, sjúkur og þér vitjuðuð mín, í fangelsi var ég, og þér komuð til mín. Hér eru dýrstu fjársjóðir og ávextir kristinnar sáluhjálplegrar kærleikstrúar taldir upp. Einn þeirra er, að vitja hins sjúka. Hvað er að vitja? Samkvæmt dýpsta skilningi kristinnar sáluhjálplegrar kærleikstrúar aldanna, hefst vitjun til hins sjúka í bæninni, þar sem opnað er fyrir frelsandi og líknandi náð og miskunn Guðs, í Kristi Jesú, til handa þeim sjúka. Þetta sýndi Jesús sjálfur í lífi sínu, bæði þegar Hann lagði hendur yfir sjúka, en einnig þegar Hann mælti fyrir í bæn fyrir hinum sjúka, (t.d. þegar Hann læknaði son hundraðshöfðingjans). Bænin er hér grundvöllurinn, eða öllu heldur lykillinn að þeirri óendanlega náð og miskunn Drottins, í Kristi Jesú, sem gaf líf sitt til lausnargjalds, dó á krossi þeim dauða, sem við höfðum kallað yfir okkur, sigraði dauðann, og fullnaði þann sigur með upprisu sinni frá dauðum. Hér komum við að kjarna kristinnar kærleikstrúar aldanna, þar sem einn af ávöxtunum er, að sjúkir hafa notið umönnunar og líknar. Sú umönnun og líkn byggist á bænalífinu, síðan bætast við bein líknarstörf og umönnun, þar sem hins sjúka er vitjað, hvort sem er í heimahús eða á sjúkrahúsum. Og síðast en ekki síst að vitja sinna nánustu sem og annarra.
Vitjunin hefst í og með bæninni, sem er lykillinn að frelsandi og líknaði náð Drottins. Þessa heildarmynd verðum við að hafa, til að sjá bjargtraustan grundvöll þess, að sjúkir njóti áfram líknar og miskunnar, annars vegar fyrir bænina, og hins vegar fyrir beina líknarþjónustu og umönnun.. Loks kemur svo að því að vitja hins sjúka, eins og Jesús sýndi sjálfur, t.d. er Hann kom að sjúkrabeði tengdamóður Símonar Péturs; en Hann hafði beðið fyrir henni. Hér er um að ræða þá óendanlegau miskunn og náð Drottins, sem miðlað er síðan til hins sjúka.

Líknar- og heilbrigðisþjónustan, bæði hér á landi og annars staðar, er ein af dýrmætustu arfleifð og ávexti kristinnar kærleikstrúar aldanna. Bænin er hér grundvallaratriði, eða öllu heldur lykillinn að grundvellinum, sem er eilíf frelsandi og líknindi náð Drottins, í Kristi Jesú, og vanti þann grundvöll, er ekki von á góðu. Nákvæmlega á þennan hátt byggðu kaþólsku systurnar upp líknarstarfsemi sína á byrjun síðustu aldar; vissulega fylgdi þessu líknarstarfi kostnaður, sem var samt af skornum skammti, sem hins vegar var nýttur til hins ýtrasta. Náð Drottins og bænin var þeim að leiðarljósi, grundvallað á konungi kærleikans, Kristi Jesú. Sama er að segja um líknarverk mannvinanna systur Móður Theresu og kristniboðslæknisins Alberts Scwheitzers. Og í raun einnig áframhaldandi uppbygging líknarþjónustunnar hér á landi á fyrri hluta síðustu aldar, t.d. með stofnun sjúkrasamlags, sem nýtt var á sem bestan og skynsamlega hátt.

Líknarþjónustan, þ.e. umönnun sjúkra og björgun mannslífa, verður að byggast áfram á bjargi aldanna, annars er voðinn vís, eins og komið hefur á daginn, ekki bara hér á landi, heldur víða um hinn vestræna heim; hvað þá í þeim löndum, þar sem fátækt er hvað mest, eins og í Afríku, Asíu og víðar, og var ekki á bætandi. Þá hafa vestræn ríki, í samráði við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS.), lokað fjölda sjúkrahúsa (ekki bara „skorið niður“ þjónustuna), víða í Afríku og Asíu; jafnvel í Austur-Evrópu. Hér er ekkert um annað að ræða en glæp gegn mannkyni! Og nógu mikill er sá glæpur vestrænna ríkja, að „skera niður“ þjónustuna í eigin löndum; ef ekki er hugsað um eigin þegna, hvernig má þá búast við því, að hugað sé að „fjarlægum“ löndum; og er Ísland langt frá því að vera hér undantekning; þvert á móti hefur hér á landi átt sér stað, mikill siðlaus niðurskurður, einkum til líknar- og heilbrigðisþjónustunnar sem og þróunarhjálpar.

Þá hefur og fátækt m.a. hér á landi aukist, sem er ekkert annað en afleiðing andlegs hruns, sem löngu var hafið, áður en hið svonenfnda „bankahrun“ varð, haustið 2008. Og andlegur þáttur „bankahrunsins“ eða „kreppunnar“ er skammarlega vanmetinn, og þá ekki síst sú félagslega einangrun, sem bitnar harðast á þeim, sem enga sök eiga á ástandinu. Andlegum þætti svonefndrar kreppu er alfarið gleymt!! Við erum bæði siðblind og skeytingarlaus, ef við sjáum þetta ekki. Landsstjórnin er aðeins að framkvæma það, sem a.m.k. hugur hluta almennings, stendur til. Og þess meiri þjóðarskömm er hér um að ræða, að Ísland skuli enn teljast til þess, að vera meðal tekjuhæstu þjóða, í heild sinni. Ríkiskassinn er ekki tómur; þó er skorið á siðlausan niður varðandi þau störf og þjónustu, sem eru upp á líf og dauða komin. Og jafnfarmt er þess meiri þjóðarskömm, hversu hið svonefnda bil milli tekjuhárra einstaklinga og tekjulágra, er alltaf að aukast og aukast. Það er með öllu óverjandi, að líta á mennskar manneskjur sem dauða hluti eða tölur á pappírum, þ.m.t. stóran hóp eldri borgara og öryrkja sem og þann fjölda ungs fólks, sem hefur neyðst til þess að flytja af landi brott, og jafnvel misst heimili sitt, og getur ekki lengur brauðfætt sig og sína hér á landi. Andlegur þáttur slíkra áfalla er einnig skammarlega vanmetinn.

Kristniboðsskipunin á hér heldur betur við, fyrr var þörf, nú nauðsyn. Ef afkristnunin heldur áfram og ekki er hugað að okkar minnstu meðbræðrum og systrum í hinum vestræna heimi, hvað verður þá um þau fjarlægu raunabörn; þau munu þá ekki njóta nokkurrar líknarþjónustu, sem neinu nemur, auk þeirra fjölda milljóna, t.d. í Afríku, og þá ekki síst mæðra og barna, sem munu verða hungurmorða, ofan á hinar milljónirnar, sem þegar hafa fengið að deyja Drottni sínum, vegna sinnuleysis og skeytingarleysis hinna efnaðri þjóða. Hér kemur enn skýrar fram, hversu mikils er um vert, að rjúfa ekki samhengið milli kristniboðs og kristilegrar hjálparstarfsemi, nær sem fjær. Okkur kemur við, ef við viljum á annað borð teljast kristin, neyð meðbræðra vorra og systra, hvort sem þau standa okkur allra næst, eru í nágrenninu, eða hvort heldur þau búi í 10 km. eða 4000 km. fjarlægð frá okkur. Og við megum heldur ekki gleyma að líta okkur næst, einnig varðandi þá fátækt, sem leitt hefur af hinni andlegu fátækt mannfélagsins, og er örsök bæði heimskreppunnar og „bankahrunsins“, hér á landi, vegna þess að haft var alltof mikið að leiðarljósi, sá fjársjóður, sem möl og ryð fær grandað, sem bitnar síðan harðast á þeim, er síst skyldi, og enga sök eiga á ástandinu. Skeytingarleysi og siðblinda tíðaranda nútímans má ekki ná hér rótum, né annars staðar. Guðlaust líf leiðir ekki aðeins af sér líkamlegan dauða, heldur einnig andlegan; þ.e. ógnar eilífri sáluhjálp náungans, sem er vissulega það alvarlegasta í þessu. Ef til vill erum við komin aftur á byrjunarreyt. Er land vort frekar orðið að kristniboðsakri, frekar en að teljast kristið land? En þá er um að gera að byggja upp og að endurreisnin sé byggð á bjargi aldanna, Kristi Jesú, en ekki tíðaranda hvers tíma, og leggja þess meiri ásherslu á hina sönnu innviði þjónustunnar til handa hinum sjúku og þeirra, sem eru í nauðum á einn eða annan hátt; eða eins og forstöðumaður Samhjálpar sagði, að aldrei sem fyrr hafi verið eins mikil þörf á að varðveita og efla velferðarþjónustuna sem nú, einmitt í þeim aðstæðum, sem við blasa í dag. Hin kristnu sjónarmið lýsa eins og ljós í myrkri grimmrar og skeytingarlausrar heimshyggju, og sinnuleysi, sem byggist á botnlausum forarpytti guðlauss miskunnarleysisins. Endurreisn sjúkrasamlags kæmi hér að fullum notum sem og skattlagning á inngreiðslur í lífeyrissjóði (ekki afturvirkt), sem væri einnig mjög skynsamlegt, til að tryggja ekki síst óskerta líknar- og mannúðarþjónustu, til handa öllum, óháð stétt og stöðu og óháð efnahag, og nýta fé til líknar- og velferðarþjónustunnar á sem allra besta hátt, án nokkurs niðurskurðar til þjónustunnar sjálfrar.

Og sem fyrr segir, megum við aldrei gleyma að líta okkur næst. Mannvinurinn og kristniboðslæknirinn, Albert Schweitzer, kemst m.a. svo að orði:

„Mönnum hættir til þess að leita langt yfir skammt. Oft sjá þeir fjarlæg og sérstæð verkefni í hillingum og láta sér þá sjást yfir önnur, sem eru hendi næst og engu að síður veigamikil og þörf. ... .“ (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, ævisaga, bls. 272).

Varið er hærri fjárframlögum, bara svo eitt dæmi sé nefnt, fyrir utan öll „gæluverkefnin“, til hins nýja tónlistar- og ráðstefnuhúss, svonefndrar „Hörpu“ eða sem nemur 33 milljörðum króna, á sama tíma og skorið er niður til líknar- og heilbrigðisþjónustunnar, sem stefnir lífi veiks fólks í bráða hættu; forgangsröðin er hér stórhættuleg!!! Fleiri hundruð heilbrigðisstarffólks hefur verið sagt upp; álagið verður nær óbærilegt gagnvart því heilbrigðisstarfsfólki, sem eftir stendur; þjónustan skerðist, og biðlistar stóraukast. Hér er verið að spara eyrinn, en henda krónunni, fyrir utan það, sem aldrei, aldrei verður metið til fjár! Sama er að segja varðandi skólastörf, löggæslu, og önnur störf björgunar, og varðar almannaheill, o.s.frv.

Störf líknar, miskunnar, björgunar, uppeldis- og menntunnar, eru sérstaklega vanmetin á mjög ómaklega hátt. Um það bil 660 heilbrigðisstarfsmönnum hefur sagt upp störfum hjá Landspítalanum, auk fjölda manns úti á landsbyggðinni; þótt þvert á móti brýn þörf hefði verið á því, að fjölga þeim verulega, ekki síst í aðstæðum nútímans, bæði úti á landsbyggðinni og Landspítalanum. Athygli vekur, að um 90% þeirra starfsmanna, sem sagt er hér upp, eru konur, sem einkum sinna hreingerningu, sem engin starfsemi gæti verið án, og hjúkrun, umönnun og rannsóknum. Hin hefðbundnu kvennastörf eru hér sérstaklega vanmetin á mjög ómaklegan hátt.

Ef bágur efnashagur hefði ráðið ferðinni varðandi fyrrnefnd líknarstörf, og tíðarandinn ráðið ferðinni, - en veraldleg fátækt var þá meiri en nú, andstætt því er varðar hina andlegu fátækt, - hefði ekkert orðið af þeim; það hefði ekki svarað kostnaði, miðað við tíðarandann í dag. Grundvallarspurningin er því þessi: Ætlar mannfélagið að byggja líf sitt á sandi tíðarandns, sinnuleyisins, skeytingarleysisins, m.ö.o. siðblindu og siðleysi hins grimma tíðaranda, eða byggja líf sitt á bjargi aldanna, Drottni Jesú Kristi, með náð, líkn og miskunn Drottins að leiðarljósi, í varðveislu og uppbyggingu kristinnar kærleikstrúar aldanna, þar sem hvert mannslíf sem og eilíf sáluhjálp þess, er ómetanlegt, þar sem þeim fjársjóði er safnað, sem mölur og ryð fær aldrei grandað, er tekið fram yfir forgengilegan auð, sem mölur og ryð fær eytt, og stefna þar með lífi sínu, samborgara sinna og annarra, í bráða lífshættu og neyð, og stefna eigin eilífri sáluhjálp í voða sem og annarra, miðað við orð Drottins Jesú Krists. Þannig er dæmdur sakamaður, sem gerir iðrun, í betri málum, en ,,heiðarlegur nútímamaður“, sem byggir á sandi tíðarandans og sinnuleysins, sem telur iðrunar ekki þörf; samanber iðrun ræningjans við hlið Jesú á krossinum: Og Jesús sagði við hann: ,,Sannlega segi ég þér: Í dag skaltu vera með mér í Paradís.“ (Lúk. 23. kap., vers 43). Og allir eru fyrirhugaðir, frá grunvöllun heims, til eilífs hjálpræðis og eilífs lífs í Kristi Jesú. Hinir réttlátu, eða öllu heldur réttlættu, muna fara til eilífs lífs, það er allir þeir, sem meðtaka, og hafna ekki eilífu hjálpræði Guðs, í Drottni vorum Jesú Kristi til eilífs hjálpræðis, og leifa Kristi Jesú að lifa í sér og öllu sínu lífi; lifa í iðrun og helgun. Og allir, allir, eru fyrirhugaðir til eilífs hjálpræðis og eilífs lífs, í Drottni vorum og Frelsara, Kristi Jesú, konungi konunganna, konungi kærleikans.

Opnum hjörtu vor fyrir Honum, og blóð Krists mun hreinsa oss stöðugt af synd, og vér lifa senn í iðrun og helgun, og þá munum við fyllast Heilögum Anda, Anda huggunarinnar, sem mun starfa í okkur, sem mun síðan fullnast á himnum.

Mannvinurinn, kristniboðinn og æskulýðsleiðtoginn, Bjarni Eyjólsson (1913-1972), ritstjóri í Reykjavík, kemst svo að orði í þessari fögru þýðingu hans á hinum fögru sálmversum Norska mannvinarins og kristniboðans, K.L.Reichelt (1877-1952), sem segir allt, sem skiptir máli varðandi það að fylgja Kristi sem einlægur lærisveinn Hans, í kærleikssamfélagi Hans:

Ó, DROTTINN, ég vil aðeins eitt:
Að efla ríki þitt.
Ó, þökk, að náð sú var mér veitt,
sem vakti hjarta mitt.
Ég verður, Jesús, ekki er
að eiga að vera´ í þínum her,
en vinarnafn þú valdir mér,
mig vafðir blítt að hjarta þér,
ó, hjálpa mér
að hlýðnast eins og ber.

Ó, lát mig fá að finna ljóst,
hve fólksins neyð er sár.
Mér gef þinn ástareld í brjóst
og einlæg hryggðartár.
Í ljósi þínu lát mig sjá
hvern lýð, sem neyð og heiðni þjá,
því neyðin hans er hróp frá þér
að hjálpa – eins og bauðstu mér -
að dauðastund
með djarfri fórnarlund.

Þá eitt ég veit: Mitt auga sér
þá undraverðu sín,
er langri ævi lokið er
og líf og kraftur dvín:
Ég sé þitt ríki sigur fær,
til sérhvers lýðs þitt frelsi nær,
og þessi mikli helgra her,
sem hjálp og lífið fann í þér,
þig, líknin blíð,
mun lofa alla tíð.

(Sálmabók 1972 Reichelt – Bjarni Eyjólsson)


Það að biðja fyrir hinum sjúka, og að hann njóti líknar og umönnunar, nær sem fjær, er sitt hvor greinin á sama vínviði þess alkærleika, sem Jesús Kristur er, konungi konunganna, konungi kærleikans, Drottins vors og Frelsara, sem gaf okkur öllum líf sitt, fæddist hér á jörðu niðri á hinum fyrstu jólum, frelsaði og læknaði sjúka, og dó á krossi vegna okkar synda og misgjörða, og fullnaði sigur sinn yfir dauðanum, með upprisu sinni. Myndist gjá milli greinanna, er voðinn vís, eins og komið hefur á daginn. Nákvæmlega sama gildir varðandi fangann sem og aðra þá, sem í nauðum eru staddir, þ.m.t. í fátæktargildrum, og þeirri félagslegu einangrun, sem fylgir slíkum gildrum, á einn eða annan hátt, andlega sem efnislega, samkvæmt orðum Jesús Krists, Hans, sem kemur aftur, og tekur sína elskuðu og blessuðu föður síns til sín í himinn sinn, þar sem ekki er til framar sorg, sjúkdómar, né nokkur þrenging né þjáning, heldur eilíf gleði og fögnuður, í Ríki Hans, hinum nýja himni og hinn nýju jörð, þar sem dagur rennur ei framar, þar sem ríkir eilíf jóla- og páskagleði heima hjá Guði, við hlið konungs kongunna, konungs kærleikans, Drottins Jesú Krists, í Heilögum Anda, þar sem verða endurfundir ástvina. Þegar sorgin kveður dyra, og góðir vinir kveðja, er ekkert sem huggar en sú vissa, að Drottinn Jesús Kristur tekur öll börnin sín heim til sín; stendur við hlið okkar allra í sorginni, og gefur loks endurfundi vina og ástvina.
Tökum í trú á móti Drottni vorum, Endurlausnara og Frelsara, Jesú Kristi, sem kallar oss til fylgdar sem forðum, og lagði sjálfan sig í sölurnar fyrir oss, til þess að vér mættum að eilífu lifa með Honum í kærleikssamfélagi Hans, sem öllum er fyrirhugað. Þá fyllumst vér Heilögum Anda, sem býr í oss og vöxum í helgun; lifum í iðrun og helgun. Þá munum vér hljóta þann dyrðarsveig, sem fullnast við lok tímanna á himnum, þar sem verða endurfundir vina og ástvina. Þá verður fögnuður vor fullkominn. Ég enda með orðum mannvinarins og kristniboðslæknisins Alberts Schweitzers:

,,Hann kemur til vor eins og ókunnugur nafnlaus gestur, á sama hátt og Hann kom forðum við bakka vatnisins, Hann kom til þessarra manna, sem ekki vissu hver Hann var. Hann segir sömu orðin: ,,Fylg þú mér!“ Og Hann bendir oss á þau verkefni, sem Hann þarf að leysa á vorum tímum. Hann skipar fyrir. (*Köllun Jesú Krists, sem er í órofa samhengi við kristniboðsskipunina, sjá einkum Metteusarguðspjall, 28. kap., vers 18-20). Og þeim, sem hlýða Honum, hvort sem þeir eru vitrir eða fávísir, mun Hann opinbera sjálfan sig í því, sem þeir fá að reyna í samfélagi Hans af erfiðleikum, átökum, og þrautum og þjáningum, og sem ósegjanlegan leyndardóm munu þeir læra og komast sjálfir að raun um Hver Hann er.“ (Albert Schweitzer, 1954, The Quest of the Historical Jesus, bls. 401. *Innskot og áherslubreyting: ÓÞ). Sá ósegjanlegi leyndardómur er, að Jesús er Kristur, Sonur hins lifanda Guðs Föður vors á himnum; hinn sanni Messías! Amen!

Með óskum um Guðs blessun,

Ólafur Þórisson, cand. theol. Höfundur er með embættispróf í guðfræði frá HÍ., og hefur rétt til embættisgengis til prestsþjónustu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Þórisson

Höfundur

Ólafur Þórisson
Ólafur Þórisson
Höfundur er með embættispróf í guðfræði frá Háskóla Íslands, og hefur lögbundinn rétt til embættisgengis til prestsþjónustu. Höfundur er að vinna að MA-ritgerð um mannvininn og kristniboðslækninn Albert Schweitzer. Höfundur er einnig að vinna að greinaskrifum um Albert Schweitzer, sem birtast sérstaklega á þessari heimasíðu (bloggsíðu).
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband